01. ágúst 2007 klukkan 17:06
Sael oll..
Jaeja tha er komid ad heimferd ...attum bokad flug i gaer nema hvad hann Saudur Karlsson tyndi vegabrefinu...jaja thvilikt vesen sem thad er buid ad vera........en vegabrefid er fundid!!!!! ja ja haldidi ad vegabrefid hafi ekki verid a fyrsta hotelinu i Los Angeles, thratt fyrir thad aetlar Saudur Karlsson ad fara ur landi med vara vegabref svo ad vid getum komist heim sem fyrst :)
Eg veit thad ad oll fjolskyldan min heldur ad Saudurinn se i rauninni eg thar sem svona lagad gerist fyrir mig eeeen ha ha ha thad var ekki eg i thetta sinn thannig ad Saudsnafnid er flutt.
Sjaum ykkur vonandi bradlega ef allt gengur vel
Ásdís Guðmundsdóttir
27. júlí 2007 klukkan 07:00
Thad var sko aldeilis gott að vera komin aftur í siðmenninguna, á Fiji vorum við algjörlega sambandslaus við umheiminn, enginn sími og ekkert internet....allt annad en við bjuggumst við. Við erum í Californiu fylki þar sem allir furðufuglarnir, glamúrkellingarnar og kynskiptingarnir þrífast. Á götunum eru sjowin hver á eftir öðru, rapparar, dansarar, og eftirlíkingar...af fraegum kaerekterum. Eftir að hafa þraett götur Hollywoods þá var leiðinni haldið til Las Vegas. Við leigðum okkur eldrauðan Mustang blaejubíl .....það verður sko að ferðast um þjóðveg 66 með stael )Sex tímum seinna vorum við maett til Las Vegas....vá þvílík sjón...það verða allir að fara til Las Vegas og sjá thessa fantasíuborg með eigin augum....thetta er ekkert nema glamúr og meiri glamúr og auðvitað gamlar kellingar við spilakassana.... Við urðum auðvitað að halda áfram með glamúrlífið þannig að við gistum á Bellagio www.bellagio.com þar sem Ocean 11 var tekin upp muniði!! þvílík geðveiki....þið verðið að kíkja inn á síðuna hjá þessu fraega hóteli. Herbergið var geggjað, það var haegt að dansa í baðherberginu og í herberginu voru tvö risastór rúm þaegileg rúm...áttum þetta skilið eftir öll ógeðslegu rúmin sem við erum búin að sofa í ef rúm á að kalla. Erum nú komin til Grand Canyon og aetlum að eyða deginum á morgun frá glamúrnum og skoða eitthvað að viti.....svona rétt til að hlaða batteríin fyrir gamblið í Las Vegas. Skrifum eftir gamblið....thegar við erum orðin rík.....eða ekki...
Vid fljugum sidan fra San Fransisco 31.juli til London og erum ad reyna fa flug strax heim....
Ásdís Guðmundsdóttir
14. júlí 2007 klukkan 20:29
Vodalega erud thid oll otholinmod, eins og their segja herna i Midjardarhafinu, "Fiji time!!".....vid kvoddum ykkur seinast i Nyja Sjalandi thar sem vid theyttumst um a Benz Sprinter...oftast a vinstri helmingnum...stundum gleymir madur ser bara!!
En thad er samt magnad ad hafa farid eins langt fra Islandi og haegt er og finna thar landslag svo likt og heima, audvitad fyrir utan regnskogana. Saum Jokultungu skrida rolega framhja regnskogi, sem sest bara a tveimur stodum i heiminum! Tokum upp innfaeddann tannlausan puttaling med tvo hunda i tveggjasaeta bilinn okkar, hundarnir thurftu natturulega ad merkja ser svaedid og akvadu ad rumid okkar vaeri tilvalinn stadur til thess! Eg for a snjobretti i queenstown ,sem er Mecca adrenalin sjuklinga, medan asdis versladi og sa mauri syningu. Daginn eftir forum vid i Milford sound sem er fjordur thar sem 2000m hair klettaveggir rysa upp ur sjonum...Tilkomumikil sjon!! Daginn eftir forum vid svo a jetboat a 'a sem fer frekar hratt
Stígur Már Karlsson
28. júní 2007 klukkan 00:45
Það er best ad halda áfram ad blogga svo þið gleymið okkur ekki heima þarna hinum megin á hnettinum því eins og er þá erum við stödd í Nýja Sjálandi í skítakulda ....brrr...
En ef við höldum áfram með ferðasöguna þá vorum við seinast stödd í heittempraða loftslaginu í Koh Phangan sem er lítil eyja rétt við Thailand, þar leigðum við okkur mótorhjól og keyrðum um alla eyjuna sem hefur að geyma geysilega fallegar og hvítar strendur. Við gistum líka á klassa hóteli þar sem við höfðum svalir með þvílíku útsýni yfir ströndina og tært hafið....ekki amalegt að vakna við glampandi sól og sjávargolu á hverjum degi...en við eyddum ekki dögunum í sólbaði frekar en fyrri daginn því loksins og þá segi ég loksins fórum við í fílasafarí...ég var búin að bíða eftir þessu alla ferðina...Stíg hefur aldrei fundist það neitt afar góð hugmynd....en einhvern hluta vegna þá finnst mér fílasafarí algjört möst í heimsreisu....sitja á fíl og skoða útsýnið...hljómar sko spennandi og framandi fyrir mér. Satt að segja burt séð frá lyktanni ﴾fílar lykta eins og úldnir skór﴿ þá var þetta ein sú fyndnasta ...en á sama tíma ein sorglegasta upplifun hingað til. Við fengum elsta fílinn í hópnum og ferðin minnti helst á rússíbana frekar en eitthvað annað....fíllinn lét ekki af stjórn allan tímann...við þeyttumst fram og til baka á greyið fílnum...fílahirðirinn talaði fílatungumál en fíllinn fór sínar ótroðnu slóðir sérstaklega þegar við vorum á leið niður....fíllinn vildi ólmur fara upp á topp og hirðirinn var í tómu basli með skepnuna....hann tosaði og tosaði í eyrun á greyið fílnum þangað til að hann var farin að hanga í eyrunum á honum....greyið fíllinn....en hann finnur nú svosem ekkert fyrir því þótt einhver 40 kílóa Tailendingur hangi í honum....mann veit svosem aldrei. Það sorglega samt við þessi fílasafarí er hversu dýrin eru illa haldin, þau eru svelt og þola illa hitann. Þrátt fyrir það að þá er ekki haegt að segja að við sáum eftir þessari ferð....sem jú endaði með vatnsgusu úr rana fílsins..skondinn sá gamli...
Við vorum ekki búin að fá nóg af kúltúrnum í Thailandi því við drifum okkur að sjá Muay Thai um kvöldið, Muay Thai er þekkt bardagaíþrótt hér í Thailandi fyrir þá sem ekki vita......Okkur leist nú ekkert á blikuna í byrjun því fyrsti bardaginn var á milli strák pjakka ekki eldri en 8 ára ...og þeir voru ekkert að leika sér þarna í bardagahringnum heldur kíldu hvorn annan alveg hegri vinstri....hvað er það!!!!ég var dauðskelkuð...hvar voru mömmur þessara stráka....ekki alveg í lagi með þaer! Svo sá ég tvaer alveg geðveikar öskrandi og hvetjandi strákana ....gat það verið.?...Jaeja en sem leið á kvöldið fór aldurinn uppávið sem betur fer, höggin dundu og hver einasti bardagi endaði með rothöggi meira segja milli þessara 8 ára....ég veit ekki ...fyrir mér var alveg ágaett að hafa farið og sjá þetta ....en eitt skipti er alveg nóg..
Í Koh Phangan kynntumst við pari frá Svíþjóð, David og Johanna sem við síðan eyddum naestu dögum með og fórum aftur til Koh Tao þar sem við köfuðum aðeins meira með þeim og Stígur sá skjaldböku í naeturköfun. David er ekkert venjulegur ...því hann er töframaður ...sko ALVÖRU töframaður ......þetta var eins og sirkus öll kvöld með nokkrum fötum af áfengi því þannig drekka maður í Thailandi...engin glös....bara fötur. Það var betra að hafa svoldið af áfengi við höndina því töfrabrögðin voru mun veigameiri því sem á leið á fötuna....kannski var það bara áhrifameira því sem áhrifin af áfenginu fór að skella á.....en við munum svo sannarlega kalla hann heim til Íslands og halda fyrir ykkur sýningu. Síðustu tvo dagana eyddum við síðan í Bangkok....tveir dagar voru alveg nóg því það er endalaust haegt að versla þarna ...þrír dagar og við hefðum farið á hausinn....ég keypti mér nýja fartölvu og Stígur keypti viðbót við nýja áhugamálið sitt....myndavélina.
Við tók síðan 10 tíma flug til Sidney þar sem sváfum í einu ógeðslegasta gistiheimili sem til er!!.....og það bjó vampíra í herberginu okkar við sváfum með 5 öðrum bakpokaferðalöngum, vampíran svaf á daginn og vakti alla nóttina....eina nóttina og sá einu nótt sem við gistum....fór eldvarnabjallan í gang....vampíran var naestum búin að kveikja í kofanum því hún reikti svo mikið......krípí.Við örkuðum Sidney endilanga daginn út og inn í skítakulda eða 10°c hita....búin að vera í 30°-45°hita þannig það var hrikalega kalt fyrir okkur. Það var ótrúlegt að standa fyrir framan óperuhúsið....eitthvað við það sem gerir mann alveg orðlausan. Við fórum líka í 300m háan turn sem sýndi okkur útsýnið yfir alla borgina, borðuðum humar á fiskimarkaðinum við höfnina þar sem fiskimennirnir selja ferskan fisk á hverjum degi .....vonandi verður svona álíka markaður við Reykjarvíkurhöfn þegar tónlistarhúsið kemur árið 2020. Við náðum síðan loksins að hitta Pip vinkonu mína sem hýsti okkur naestu daga okkur til mikillar gleði, hún fór með okkur í útsýnisrúnt um baeinn þar sem við sigldum inn í Sidney og sáum allt frá réttu sjónarhorni, hún lét okkur síðan smakka pizzu með krókódíl, kengúru og önd.....algjört lostaeti!!!
Núna sitjum við í litla heimilinu okkar í Nýja Sjálandi, heimilið er á fjórum hjólum með klósetti, sturtu, rúmi og ísskáp (veit ekki hvað þetta flykki heitir)stigur:husbill:) ég held að á Islandi thurfi madur meiraprof til ad stjorna svona!..við munum búa í Doðrantinum í 10 daga....algjör lúxus og ekki gleyma creedance á fóninum sem er skilda á þjóðvegarflakki!!!! Fyrsta sem við gerðum var að dúða okkur upp því hér ríkir mikill kuldi eða rétt um frostmark!!! Við erum þegar búin með 3 daga, keyrðum frá Christchurch til Hanmer Spring og böðuðum okkur í jarðhitasvaeðinu þar, keyrðum síðan til Kaikura og skoðuðum hella og fórum í hvalaskoðun í lítillri flugvél....sáum tvo hvali og svakalegt útsýni. Nýja Sjáland minnir helst á Ísland, landslagið hér er ótrúlega fallegt, snjór, fjöll, vötn, nema hér eru fjöllin skógi vaxin, þetta er eins og að keyra í Hringadróttinssögu.....það er alltaf eitthvað nýtt sem tekur við og það er haegt að gera gjörsamlega allt hérna .....á morgun t.d erum við að fara að synda með höfrungum og selum.....!!!!!!!!!!!!!! Segjum ykkur frá því seinna...
Bæ á meðan
Kiss kiss
p.s eg vil taka thad fram aftur ad thad var ekki eg sem skrifadi thennan brandara um koalabjorninn!!
Ásdís Guðmundsdóttir
12. júní 2007 klukkan 04:44
ja thad er aldeilis blidan a daginn og svo hrekkur madur i kut a nottunni haldandi ad kjarnorkusprengju hafi verid varpad a eyjuna.....drunurnar eru svo svakalegar ad madur heldur ad enginn verdur morgundagurinn...
Nyjustu frettir eru thaer ad vid erum a leid til Koh Phangan og eg er alltaf svo heppin....nuna var thad ferd i apotekid til ad fjarlaegja bit a loppinni sem hafdi verid buid ad grafa i .... thetta liktist frekar risastorri graftarbolu heldur en eitthvad annad...'ogedslegt....laeknirninn skar thad af sem skildi eftir holu i loppinni og nuna er eg i sarabindum... sem thydir ad eg kemst ekki i sjoinn.... hvad er thetta eiginlega yfirleitt er thad Stigsi sem er inn og ut af bradavaktinni...!!!
Jaeja vid latum ykkur vita hvernig er i Koh Phangan
Ásdís Guðmundsdóttir
10. júní 2007 klukkan 11:07
Eg og asdis klarudum open water coursid fyrir 3 dogum og eg tok advanced open water, 5 auka kafanir og for nidur a 30 metrana og rakst a tvo hakarla!!!
ca 2m a lengd. for einnig i naeturkofun og kafadi i myrkrinu...
Eg sa einnig bluespotted stingray:
og tvo triggerfish:
70cm sem redust a okkur, bitu samt bara i froskalappirnar a kennaranum, eg slapp!!!
Hugsa ad eg yfirgefi thessa eyju bara ekkert, tek bara divemasterinn og kenni odrum heimsflokkurum ad kafa...
..greyid Asdis, sa engan hakarl!!!
...nema mig
Stígur Már Karlsson
07. júní 2007 klukkan 10:43
Kikid a myndirnar her til vinstri!!!
Thetta er bara brotabrot af theim myndum sem vid erum buin ad taka, Frekar leidinlegt ad hanga og hlada theim inn!!!
Klikkid a baedi casio og canon!!!
Stígur Már Karlsson
06. júní 2007 klukkan 10:14
Eftir 8 tima leigubilaferd lentum vid loksins i Thailandi....adra eins leigubilaferd hofum vid ekki upplifad.....nanast eins og ad vera i thvottavel a vindingu.....vegirnir voru hraedilegir...en vid vorum fegin ad losna undan kakkalakkafaraldrinum i Cambodiu...
Erum nu thegar buin ad eyda 6 dogum i herna i thaegilegheitum. Misstum okkur adeins i Bangkok og taekjakaupum..thraeddum mollin hvert af odru....Stigur keypti svakalega pro Canon myndavel og er nuna alveg eins japani....tekur myndir eins og honum se borgad fyrir thad.
Asamt taekjakaupum og odrum kaupum bordudum vid i haestu byggingu Bangkok a 83 haed sem er i 309 metrum....svakalegt utsyni...
turninn snerist i hring thannig ad haegt er ad sja yfir alla Bangkok......
Vid forum lika a eitt safn eda ef safn er haegt ad kalla....safnid eda husid heitir The Jim Thompson house og var i eigu Jim Thompson sem er thekktur arkitekt fra New York...i stuttu mali hannadi hann thetta fallega hus og fekk innblasturinn af honnuninni i Asiu....husid er til synis i dag ...eda svona til ad graeda enntha meira af turistum og Thailendingar eru voda stoltir af thessari honnun hans....og fyrir ad hafa komid Thailensku silki a markadinn..

Jaeja planid var nu ekki ad hanga lenguri Bangkok thannig vid tokum naeturstraeto og Batsferd a eyjuna Kah Tao ......algjor paradis....maetti vera minna um turista en samt aedislegt ad vera herna. Vid sofum i Bungalowi a strondinni og erum buin ad vera a kofunarnamskeidi sem endadi i dag....Vid erum semsagt buin ad vera ad kafa sidustu 4 daga i strongu programmi.....fra morgni til kvolds og thad er meira segja heimavinna sem fylgir thessu....og prof.!!!!! hofum ekkert getad haft tima fyrir solbad ...neinei vid thurfum ad laera..en thad er ekki svo slaemt thvi nuna erum vid komin med kofunarleyfi....og erum buin ad fara nidur i 18 metra dypi og sja a.m.k 30 mismunandi fisktegundir i taer blaum sjo...alveg geggjad!!!!

Eins og thid sjaid tha er thetta algjort konfekt!!!
Sitjum nuna daudthreytt a ferdaskrifstofunni til ad lengja ferdina okkar....getum ekki skilid vid Thailand alveg strax thvi margar eru eyjarnar og vid aetlum a thaer allar!!! en ekki hvad!!! thannig ad vid verdum her til 21.juni....aetlum ad liggja i solbadi og kafa!!! ....ef einhver aetlar i fri tha er thetta stadurinn....vid erum ad borga fyrir nottina 350 isk a strondinni i kosi Bungalowi....algjor draumur i dos.
Thurfum ad thjota og sja myndband af okkur kafa !!! :)
kikid a bloggid sem Stigur er buin ad skrifa fyrir nedan ....allt um Vietnam...
p.s Gaman ad lesa commentin ykkar og gestabokina og sja hverjir fylgjast med og fa frettir fra ykkur:) endilega halda thvi afram og commenta mikid.....
Thangad til naest
Ásdís Guðmundsdóttir
06. júní 2007 klukkan 10:14
Fyrir okkur eyjaskeggja, er erfitt ad skilja allar thaer hormungar sem Vietnam hefur thurft ad thola, hvad tha Kambodia, Thad fyrsta sem madur hugsar thegar madur labbar um sofn og minningarreiti er hvad madur er, fjandakornid, heppinn! Engin klisja, thakklaeti er thad sem madur upplifir, eftir ad hrollurinn er farinn, sem kom reyndar aftur og aftur med tilheyrandi gaesahud.
Thegar vid lentum a flugvollinn var eg fraeddur um ad visad var 5 dogum styttra en vid aetludum ad dveljast i vietnam... eg spurdi hvort hann gaeti ekki framlengt thvi en yppti oxlum og sagdist ekki vita thad...svo stimpladi hann ad vid gaetum verid manud fram fyrir, sem sagt hann var bara ad vonast eftir sma bonus. Vid forum a stridsafnid sem var upplifun vaegast sagt! Um kvoldid tokum vid rolt og fengum thvilikt gott nudd!! Eg veit ad sora hugsunarhattur sumra er a villigotum nuna!! fota og axlanudd var thad!!
Daginn eftir leigdum vid v'elf'ak og keyrdum um Saigon. Eg bad um hjalm a leigunni og thad var bara hlegid ad mer!! Vid vorum svo bjartsyn eftir umferdina i Indlandi ad okkur fannst umferdin tharna svipud og Gardskaga!! Eg skaelbrosandi allan timan en Asdis greyid faldi sig a bak vid mig og thordi ekki ad horfa, villtumst aftur og aftur og fengum hina og thessa til ad fylgja okkur aleidis, ein stelpa meira ad segja labbadi bara af stad med kortid og aetladi ad fylgja okkur um 2 kilometra af thvi hun gat ekki alveg utskyrt hvar vid aettum ad beygja!! Endudum ferdina i hellidembu!!!
Daginn eftir forum vid i enn eitt hofid... en sidan forum vid ad skodudum cu chi gongin sem kommunistarnir notudu i skaeruhernadi gegn bandarikjamonnum, mjog throng og flokin gong,(tharna kom sennilega upp sorinn aftur hja sumum) svaedid er sennilega mest sprengda svaedi i heiminum. Guideinn okkar sa um samskipti fyrir bandariska herinn, thad vantadi nokkra putta a hann!!
Um kvoldid fengum vid okkur ad borda a veitingastad rett hja hotelinu, eg tok eftir ad fyrir utan voru menn ad rifast, allir mjog yfirvegadir, satu bara rolegir en voru samt ad hnakkrifast, 10 minutum sidar sa eg blossana koma inn eftir molotov kokteil i bjorflosku sem var kastad a veitingastadinn sem brotnadi fyrir ofan innganginn, tveir vietnamar kaefdu eldinn sem laesti sig buxunum theirra... Eg thaut upp til ad sja hvad vaeri i gangi uti en allir bara enn sallarolegir, sopudu upp glerbrotin og heldu afram ad sotra bjorinn sinn. tjonninn sagdi yea yea only mafia...
meira til ad koma...
p.s. Bara toffarar sem kafa!!!!
Stígur Már Karlsson
30. maí 2007 klukkan 02:12
...ásamt 30 fljúgandi kakkalokkum,thvílík laeti sem thessi kvikyndi geta gefid frá sér!!
Their koma víst med regntímabilinu, í gaerkvoldi voru allir ad fara yfir um vid ad reyna ad na theim, já svo éta thau thá, steikja tha í chili.....mmmmhh!!
thangad til..........
Stígur Már Karlsson